Já það var skorað á mig að byrja að blogga hér og á minn fyrsti pistill að vera um ykkur elskurnar mína og mín fyrstu kynni af ykkur

Ég get alveg sagt það að mér leið nú hálf kjánalega þegar ég hitti ykkur allar fyrst..... Tróð mér inn í hópinn með henni Önnu Soffíu og þekkti engan nema kannaðist nú aðeins við Birnu og Hrönn
Ég bankaði uppá heima hjá Hrönn og fannst ég vera rosalega sveitó.....
Ég sat eins og illagerður hlutur í stofunni og þorði ekki að yrða á neinn vegna hættu við það að einhver myndi svara mér (Já ég var mjög hrædd við ykkur enda allar sót ölvaðar)
Þetta kvöld var ákveðið að fara til Keflavíkur á Neistaflug minnir mig að það heiti vegna þess að ein stelpan í hópnum var svo skotin í strák þar (Elín). Áður en ég gekk út um dyrnar fékk ég í hendur töfrasprota (sem ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við) og svo skutlaði Andri Karl allavega okkur Önnu Soffíu og ég man að ég var orðin frekar drukkin á leiðinni, allavega samkjaftaði ég allaleiðina.....
Þegar komið var til Keflavíkur hittist svo allur hópurinn aftur og reyndi að horfa á flugelda. Þar kom til sögunnar lítill strákur sem Anna Soffía var æst í að fá að kyssa og þar voru e-h vinir hans líka. Mig minnir alveg endilega að það hafi verið hún Dísa sem fékk einn strákinn til að sýna mér víví sem hann og gerði
Já og alveg rétt það var stiga keppni þetta kvöld sem ég tel mig hafa unnið bara út af þessu eina atviki

En svo var farið aftur í bæinn á Hverfisbarinn (einhverjar urðu samt eftir) og dansaður af sér rassin og sumir (Anna Soffía) fóru að dansa upp á stólum eins og oft var gert eftir það.....
En já mikið var drukkið þetta kvöld þannig að ég gat nú ekki mikið lagt á minnið hver hét hvað en mér fannst alltaf verið að kalla í mig þegar var verið að kalla á Dísu.....
Þegar ég fór að geta lagt á minnið hver var hvað þá sá ég það að ég væri að kynnast þessum svakalegu karakterum
Byrjum bara af handahófi.......
Birna 
ég held bara að ég hafi aldrei kynnst jafn innilegri manneskju, hún segir nákvæmlega það sem kemur fyrst upp í kollinn (stundum er samt betra að fara yfir það áður en það er sagt en það gerir Birna ekki

) Það er alger snilld að vera með henni
Hrönn 
þar sá ég tipp topp manneskju sem var með allt á hreinu og lét ekkert ganga yfir sig
Magga 
ég var soldið hrædd við hana

ég hélt hún væri alger tík og mig langaði sko ekki að leda upp á kannt við hana
Elín 
hún var nú e-h svo skotin fyrst að það er nú kannski ekki alveg að marka, en já hörku gella sem nennti sko alveg að hafa sig til
Jana 
ég verð nú að vera hreinskilin og fyrstu kynni mín af henni fannst mér hún virka algert snobb. Soldið erfitt að tala við hana. En það er nú allt annað í dag og fattaði ég seinna að hún er bara feimin (sem ég skil mjög vel því ég er alveg eins og virka oft sem snobb líka

) en shit hvað hún er fyndin og sérstaklega í glasi

Dísa 
ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja...... já ég hélt að hún væri soldið klikk fyrst en komst að því seinna að hún væri kolruggluð!!!! en ég hef líka bara nett gaman af því
Björk 
Mig langar að hafa hana í öllum partýum sem ég fer í, glamrandi á gítarinn og taka blúsleikinn

hún er ekta
Hildur 
ég trúi því bara ekki ennþá hvað hún er gömul!!!!
Valdís 
þar sá ég mjög skemmtilega persónu!!! Stelpa sem er á föstu en getur nú samt alveg djammað og tjúttað með stelpunum (það er svo oft sem það er ekki hægt). topp manneskja sem getur nú samt alveg verið nett kúkú
Anna Soffía 
Ég verð eigilega að taka hana líka fyrir því að ég kynntist bara allt annari manneskju en ég þekkti fyrir. við vorum nottla soldið búnar að missa sambandið fyrir þetta en málið er nú þannig að þegar ég fór til Önnu Soffíu var bara chillað, leigt spólu og borðað nammi. Þarna sá ég hana virkilega djamma, hauslausa niðrí bæ, dansandi upp á borðum í skólapilsi..... þessi líka svaka djammari sem ég hafði ekki þekkt áður og ég fílaði í tætlur
Ég held að þetta séu allir og það má enginn móðgast við þetta því þetta voru aðeins mín fyrstu kynni og margt hefur breyst síðan þá
En ég er mjög ánægð að hafa troðið mér inn í þennan hóp ,algerir snillingar!!!!